Sjúkrahúsið á Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Flýtilyklar

Fréttir

Leiðrétting á frétt N4 og mbl.is

Almennt - fimmtudagur 28.jan.10 10:21 - Jakobína Reynisdóttir - Lestrar 897 - Athugasemdir (0)
 

Með tilvísan í frétt á N4 þann 20.janúar og mbl.is þann 26.janúar um sparnaðaraðgerðir á FSA fyrir árið 2010, kom annars vegar fram að konur þyrftu nú að koma með dömubindi með sér á fæðingadeildina og hins vegar að sjúklingar sem koma til lyfjagjafar á dag- og göngudeild lyflækninga, þurfi að hafa með sér nesti.

Sjúkrahúsið á Akureyri vill hér með leiðrétta þessi atriði sem sett eru fram í fréttinni:

 

Fæðandi konur þurfa ekki að taka með sér dömubindi á fæðingadeildina.  Engin breyting hefur orðið þar á.

Hvað varðar að sjúklingar þurfi að taka með sér nesti þegar þeir koma til lyfjagjafar, þá skal upplýst að lögð er sérstök áhersla á næringu viðkomandi sjúklingahóps og stendur þeim til boða að eigin vali morgunverður, hádegismatur og síðdegiskaffi á meðferðartíma.  Aftur á móti er þeim heimilt að taka með sér nesti að heiman ef þeir kjósa það.

Þetta leiðréttist hér með.


Til baka


Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf

Framsetning efnis