Flýtilyklar
Fréttir
Trúarleg þjónusta á FSA 15 ára

Haldið var upp á 15 ára afmæli trúarlegrar þjónustu á FSA fimmtudaginn 11. febrúar 2010.
Boðið var upp á veglega fræðsludagskrá. Valgerður Valgarðsdóttir djákni sagði frá aðdraganda og upphafi deildarinnar. Jón Aðalsteinn Baldvinsson biskup á Hólum talaði um sálgæslu við sjúklinga og aðstandendur fjarri heimabyggð. Sr. Sigfinnur Þorleifsson, sjúkrahúsprestur LSH fjallaði um mikilvægi ritúalsins í sálgæslu og stuðningi. Og að lokum fjallaði Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, sjúkrahúsprestur LSH um sálgæslu og stuðning við starfsfólk - mikilvægi marka einkalífs og vinnu.
Góður rómur var gerður að erindunum, en rúmlega 70 manns komu á fræðsludagskrána. Ákveðið var að bjóða upp á sömu dagskrá bæði fyrir og eftir hádegi til að gefa sem flestum kost á að komast.
Boðið var upp á kaffi og afmæliskringlu og einnig komu sjúkraþjálfarar FSA og leiddu fundargesti í hressandi leikfimi. Fleiri myndir
Til baka