Flýtilyklar
Fréttir
Hópslys í strjálbýli - viðbúnaður og björgun

Á málþinginu verður boðið upp á ýmsa fyrirlestra varðandi viðbúnað og björgun vegna slysa á fjöllum eða í strjálbýli og koma m.a. Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslan, Landsbjörg og Súlur - björgunarsveitin á Akureyri að þessu málþingi. Fyrirlesarar verða bæði innlendir og erlendir, allir fyrirlestrar verða fluttir á ensku.
Málþingið fer fram á hótel KEA miðvikudaginn 17. mars og hefst klukkan 08:30 og stendur til klukkan 17:00 (sjá meðfylgjandi dagskrá). Kostnaður á málþingið er 2.700 krónur og innifalið í því er hádegisverður, kaffi og ráðstefnugögn. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hjá Hildigunni Svavarsdóttur fyrir 12. mars 2010. Hægt erað skrá sig með því að senda tölvupóst á hildig@fsa.is eða hringja í síma 8600588. Skráningargjald greiðist á staðnum.
Til baka