Sjúkrahúsið á Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Flýtilyklar

Framtíðarsýn FSA 2005-2010

Á árunum 1999 og 2000 var unnið við stefnumótun fyrir Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri (FSA) sem m.a. leiddi til þess að nýtt stjórnskipurit var samþykkt. Snemma á árinu 2003 var ákveðið að ljúka þessari vinnu, taka til endurskoðunar sumt af því sem gert hafði verið og setja stefnumótunina fram með formlegum hætti.
Í febrúar 2003 var skipaður sérstakur stýrihópur vegna vinnu við þessa endurskoðun á stefnumótun og framtíðarsýn FSA.
Í stýrihópnum eiga sæti:
Ólína Torfadóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, formaður.
Baldur Dýrfjörð, starfmannastjóri.
Valtýr Sigurbjarnarson, verkefnastjóri húsnæðis- og byggingamála.
Valur Þór Marteinsson, formaður læknaráðs.
Vignir Sveinsson, framkvæmdastjóri fjármála og reksturs.
Þorvaldur Ingvarsson, framkvæmdastjóri lækninga.
Hópurinn fékk til ráðgjafar þá Helga Gestsson, lektor við HA og Ögmundur Knútsson, framkvæmdastjóra við HA.
Í skipunarbréfi er hlutverk stýrihópsins skilgreint með eftirfarandi hætti:
• Skilgreina hlutverk Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
• Skilgreina framtíðarsýn Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
• Útfæra nauðsynleg leiðarljós.
• Setja víddir, markmið og mælikvarða til yfirstjórnar FSA samkvæmt stefnumiðuðu árangursmati.
• Skilgreina meginmarkmið og meginstefnu Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Hópurinn hélt 11 fundi og skilaði sínum tillögum í lok október 2003.
Í framhaldi af því var gert samkomulag við IMG Deloitte um að útfæra og stýra frekari vinnu við uppbyggingu og innleiðingu á stefnumiðuðu árangursmati. Hefur sú vinna farið að mestu fram á árinu 2004, en stefnt er að því að stefnumiðað árangursmat verði alfarið notað til að útfæra og hrinda stefnu FSA í framkvæmd og skapa heildarsýn yfir starfsemina. Af hálfu IMG Deloitte hafa ráðgjafarnir Bjarni Jónasson, Símon Þorleifsson og Gísli Rafnsson leitt verkefnið.

Lesa

Höfundur: FSA - fös 27.apr 2007
Uppfært: Jakobína Reynisdóttir - mán 3.mar 2008

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf

Framsetning efnis