Flýtilyklar
Framkvæmdastjórn

Halldór Jónsson
forstjóri
![]() Vignir Sveinsson framkvæmdastjóri fjármála og reksturs |
![]() Ólína Torfadóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar |
![]() Þorvaldur Ingvarsson framkvæmdastjóri lækninga |
Verksvið framkvæmdastjórnar
Samkvæmt stjórnskipulagi Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA), sem gildir
frá 22. febrúar 1999, starfar sérstök framkvæmdastjórn. Hún er skipuð þremur stjórnendum, auk forstjóra. Þeir eru:
framkvæmdastjóri fjármála og reksturs, framkvæmdastjóri hjúkrunar og framkvæmdastjóri lækninga.
Heilbrigðisráðherra skipar forstjóra sjúkrahússins, en forstjóri ræður aðra framkvæmdastjórnarmenn og leysir þá
frá störfum.
Framkvæmdastjórn stýrir starfsemi og rekstri sjúkrahússins sem heild undir stjórn forstjóra.
Framkvæmdastjórnin gerir áætlanir um heildarstarfsemi sjúkrahússins og leggur forstjóri þær fyrir stjórn sjúkrahússins. Hún skipuleggur starfsemina og ber ábyrgð á daglegum rekstri, þjónustu og umönnun sjúklinga, ásamt vörslu upplýsinga um sjúklinga.
Framkvæmdastjórn gerir tillögur til stjórnar um breytingar á stjórnskipulagi einstakra deilda eða ákveðinnar starfsemi.
Framkvæmdastjórn annast ráðningar annarra stjórnenda sjúkrahússins og leysir þá frá störfum.
Framkvæmdastjórn vinnur að gerð kjarasamninga við stéttarfélög starfsmanna sjúkrahússins í samráði við
kjarasamninganefndir ríkisins.
Verkefni framkvæmdastjórnar eru eftirfarandi:
- Að sjá um að sjúkrahúsið sinni skyldum sínum varðandi þjónustu og umönnun sjúklinga á sem bestan hátt innan þess fjárhagsramma sem sjúkrahúsinu er settur.
- Vinna að því að markmiðum um starfsemi sjúkrahússins sé náð.
- Vinna fjárhagsáætlun og skipta henni niður á deildir og einstök verkefni.
- Sjá til þess að áætlanir séu haldnar og fyrirmæli stjórnvalda virt.
- Sjá til þess að innra eftirlit sé virkt.
- Vinna að gerð ársreiknings og ársskýrslu sjúkrahússins.
- Skipuleggja og þróa gæðamál sjúkrahússins.
- Skipuleggja vinnufyrirkomulag og samhæfa starfsemina.
- Tryggja gott upplýsingaflæði innan sjúkrahússins.
- Sjá um að fram fari úrvinnsla tölulegra upplýsinga um starfsemina, kostnað og tekjur.
- Vinna áætlanir um húsnæði, tæki og öryggismál.
- Móta heildstæða starfsmannastefnu fyrir sjúkrahúsið.
- Tryggja að starfsfólk þróist í starfi og skipuleggja símenntun.
- Stuðla að faglegum framförum og rannsókna- og vísindavinnu.
- Vinna að samstarfi við aðrar heilbrigðisstofnanir.
- Efla sjúkrahúsið sem háskólasjúkrahús og tryggja samstarf og tengsl við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands.
- Fjalla um kvartanir og kærur sjúklinga.
Í framkvæmdastjórn er verkefnum skipt á milli einstakra framkvæmdastjórnarmanna , samkvæmt starfslýsingum og ákvörðun forstjóra. Framkvæmdastjórn vinnur að því að deila ábyrgð og valdi til ákvarðanatöku út til deilda sjúkrahússins. Hún leggur áherslu á þverfaglega samvinnu í allri starfseminni. Hún kallar aðra stjórnendur til setu á framkvæmdastjórnarfundum eftir því sem við á.
Framkvæmdastjórn skal leitast við að ná samkomulagi um öll mál sem þar eru til afgreiðslu. Verði ágreiningur eða náist ekki samkomulag ræður atkvæði forstjóra niðurstöðu.
Uppfært: FSA - mið 20.des 2006


