Landlæknir skipar endurlífgunarráð til fjögurra ára í senn. Ráðið var stofnað síðla árs 2001.
Endurlífgunarráð er fagráð sérfræðinga á sviði endurlífgunar. Meginmarkmið þess er að auka upplýsingar, stuðla
að fræðslu og bæta staðla í endurlífgun með það að leiðarljósi að bjarga mannslífum.
Endurlífgunarráð Íslands er aðili að evrópska endurlífgunarráðinu (ERC) og á því einn
fulltrúa í framkvæmdaráði þess (Ececutive committee).
Í endurlífgunarráði sitja:
Felix Valsson, svæfingalæknir, formaður
Ásgeir Valur Snorrason, hjúkrunarfræðingur
Gunnhildur Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Hildigunnur Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Herbert Eiríksson barnalæknir
Hjörtur Oddsson hjartalæknir
Jón Örvar Kristinsson, lyflæknir
Lárus Petersen, bráðatæknir
Sesselja Haukdal Friðþjófsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Starfsmaður Endurlífgunarráðs Íslands er Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri Sjúkraflutningaskólans
Grunnendurlífgun fyrir almenning
Rauði Kross Íslands sér um námskeið í grunnendurlífgun fyrir almenning. Næstu námskeið ásamt ýmsum leiðbeiningum tengdum fyrstu hjálp má sjá með því að smella á tenglanna hér að neðan, en einnig er hægt að hafa samband við verkefnisstjóra skyndihjálparsviðs, Gunnhildi Sveinsdóttur.
Næstu námskeið hjá Rauða Kross Íslands
Leiðbeiningar í grunnendurlífgun
Ýmsar leiðbeiningar fyrir almenning tengdar fyrstu hjálp og grunnendurlífgun
Grunnendurlífgun heilbrigðisstarfsfólks
Gert er ráð fyrir að allir starfsmenn á heilbrigðisstofnunum, sem koma með einhverjum hætti að aðhlynningu sjúklinga sæki námskeið í grunnendurlífgun.
- Markmiðið með slíku námskeiði er að tryggja að starfsmennirnir séu færir um að beita grunnendurlífgun, hjartahnoði, blæstri og hjartarafstuði með sjálfvirku eða hálfsjálfvirku hjartastuðtæki, þar til sérhæfð aðstoð berst. Á slíkum námskeiðum er lögð áhersla á sýnikennslu, verklegar æfingar og stutta fyrirlestrar. Þessi námskeiða taka ekki lengri tíma en 2 - 3 klukkustundir.
- Áhersla er lögð á reglulega endurmenntun, helst árlega þar sem megin áhersla er á verklegar æfingar.
- Grunnnámskeiðið skal taka mið af þörfum starfsmanna t.d. ef um fræðslu fyrir starfsfólk barnadeildar er að ræða á að leggja áherslu á endurlífgun barna. Skipuleggja á námskeiðin í beinum tengslum við starfsemi deilda.
